Jólaglögg

JÓLAGLÖGG

EPTA

Kæru vinir, nú er komið því - AFTUR!!

Við ætlum að hittast laugardaginn 17.desember kl.16:30-18:30 í Snorrabúð, sal Söngskólans í Reykjavík sem er til húsa að Snorrabraut 54.

NEI þetta er ekki eiginlegur fundur og NEI þið verðið ekki kosin í neitt. Þetta á bara að vera gaman!

Líkt og í fyrra verðum við með jólaglögg, piparkökur og góða skapið.  Ef þið eruð með skemmtiatriði í handraðanum eða viljið koma einhverju á framfæri þá endilega ekki vera feimin.

Sagt verður frá og sýndar myndir úr hinni frábæru ferð EPTA félaga til Lucerne, á alþjóðlegu EPTA ráðstefnuna sem haldin var nú í nóvember.

Tilvalið að skella sér í glögg eftir kennslu, Laugarvegsrölt eða áður en farið er í matarboð!

Hlökkum til að sjá ykkur hress,

Stjórnin

 

Frá námskeiðinu 2. október

Sunnudaginn 2. október kom Nadia Lasserson, dóttir Carolu Grindea stofnanda EPTA, í heimsókn til okkar og hélt námskeið fyrir píanókennara. Nadia hefur sérhæft sig í að leika kammermúsik og hefur viðað að sér miklu efni af kammertónlist á öllum stigum, allt frá grunnnámi til framhaldsnáms. Hún hefur gefið út bók um efnið sem kallast “Piano needn´t be lonely, A guide to Chamber Music Repertoire for Young Pianists and Multipiano repertoire”. Á námskeiðinu fór hún yfir hin ýmsu kammerverk m.a. verk fyrir 6, 8, 12 og 16 hendur! Þátttaka á námskeiðinu var mjög góð. Væri ekki ráð að hittast reglulega og lesa af blaði? Kynnast því efni sem við öll eigum í okkar fórum og deila því með fleirum. Þetta gæti orðið bæði gagnlegt og skemmtilegt. Þessari hugmynd er hér með kastað fram! Hér eru fleiri myndir

Námskeið Nadiu Lasserson 2. október - Kammermúsík og blaðlestur!

Sunnudaginn 2. október mun Nadia Lasserson, dóttir Carolu Grindea stofnanda EPTA, koma til landsins og halda námskeið fyrir píanókennara. Námskeiðið hefst kl.10 og stendur til kl.16 (hádegishlé verður kl.12:30-14) og er haldið í sal Tónskóla Sigursveins að Engjateigi 1.

Nánar um námskeiðið hér og svo um frúna sjálfa hér!

Tónleikar Miklos Dalmay

Miðvikudagskvöldið 14. september kl. 20 verða haldnir tónleikar á vegum Klassíkur í Vatnsmýrinni, sem er tónleikaröð Félags íslenskra tónlistarmanna í samvinnu við Norræna húsið. Eru þetta þriðju tónleikar starfsársins og flytjandi verður píanóleikarinn Miklós Dalmay.
Á efnisskránni eru verk fyrir einleikspíanó eftir franska tónskáldið Claude Debussy og ungverska píanósnillinginn Franz Liszt, auk þess sem frumflutt verður píanóverk eftir Elínu Gunnlaugsdóttur.

Við hvetjum kennara til að kynna þessa tónleika fyrir nemendum sínum. Allir 21 árs og yngri fá ókeypis aðgang á tónleikana. Að auki fá allir tónlistarnemendur 21-25 ára ókeypis á tónleikana. Með þessu vill KíV hvetja til aukinnar aðsóknar ungs fólks á tónleika.

Næsta EPTAráðstefna í Lucern!

Næsta alþjóðlegu EPTA ráðstefna verður haldin í hinni undurfögru Lucerne í Sviss dagana 11.-13. Nóvember 2011.

Lucerne er í mið-norðurhluta Sviss, í þýskumælandi hlutanum. Hún var stofnuð árið 1178 og er einstaklega heillandi, með fallegan gamlan miðbæ og mikið af gömlum byggingum t.d. Gamla ráðhúsið (Altes Rathaus) og gamli borgarveggurinn (Museggmauer) sem byggður var 1350-1408. Borgin er staðsett við Lucerne vatnið (der Vierwaldstättersee) og umkringd Ölpunum og útsýni frá henni er stórkostlegt.

Nánar má lesa um Lucern t.d. hér: http://www.myswitzerland.com/en/destinations/holiday-destinations-in-switzerland/lucerne.html

Ráðstefnan er mjög áhugaverð og efni hennar mun örugglega nýtast kennurum vel þegar heim er komið. Yfirskrift ráðstefnunnar er:"Music Pedagogy in the 21th Century. - Which impulses and ideas do piano playing and piano lessons need today?" eða “Tónlistarkennslufræði á 21 öldinni – hvaða hugmyndir og hvatir eru nauðsynlegar fyrir píanóleik og píanókennslu nú á dögum?”.  Markmið ráðstefnunnar er að vekja gagnrýna umræðu um stöðu píanóleiks og píanókennslu í dag og kynna nýjar leiðir og hugmyndir.

Upplýsingar um dagskrá ráðstefnunnar og umsóknareyðublöð fyrir þátttöku er hægt að nálgast á slóðinni http://www.epta.ch/files/broschuere_epta_2011_web.pdf

Nú þegar vitum við um nokkra  félagsmenn sem ætla að fara og það væri vissulega gaman að fara sem flest. Endilega sendið okkur tölvupóst á epta@epta.is ef þið eruð að hugsa um að skella ykkur.

Við viljum vekja athygli félagsmanna á því að Endurmenntunarsjóður FÍH og KÍ til svona náms- og ráðstefnuferða (B-deild). Sótt er um styrkinn eftir á, en með umsókn skulu fylgja gögn sem staðfesta kostnað og þátttöku í námi/ráðstefnu, svo sem með ljósriti af vottorði og reikningum eða með frumritum. Hægt er að nálgast allar nánari upplýsingar varðandi styrkinn á www.ki.is.

Með von um að sem flestir sjái sér fært að koma með til Lucerne.

Bestu kveðjur,
Stjórnin.

Frá námskeiði Eddu Erlendsdóttur

Edda Erlendsdóttir miðlar nemendum af reynslu sinni og listrænu innsæi.

MASTERCLASS - EDDA ERLENDSDÓTTIR - HÖRPU

Umsóknarfrestur fyrir námskeið (masterclass) EPTA og Listahátíðar í Reykjavík með Eddu Erlendsdóttur er nú liðinn. Mjög margir sóttu um og komust færri að en vildu. Við viljum hvetja félagsmenn og nemendur þeirra til að koma, hlusta og njóta dagsins með okkur. Námskeiðið er haldið föstudaginn 3.júní og hefst kl.10 í Kaldalóni, Hörpu og stendur allan daginn eða til kl.19. Námskeiðið er félagsmönnunum EPTA og nemendum þeirra að kostnaðarlausu. Fyrir aðra er aðgangseyrir kr.1.000,-

Hér má sjá nánari dagskrá (birt með fyrirvara um breytingar).

Píanódagar 9. - 10. apríl 2011

Píanódagar verða 9. - 10. apríl - meistaranámskeið með píanóleikaranum Víkingi Heiðari Ólafssyni. Sjá nánar dagskrá / auglýsingu / plakat

Edda Erlendsdóttir - Námskeið

Föstudaginn 3.júní 2011 mun Edda Erlendsdóttir halda námskeið (Master class) á vegum Íslandsdeildar EPTA og Listahátíðar í Reykjavík í framhaldi af einleikstónleikum hennar á Listahátíð. Námskeiðið verður haldið í hinum glæsilegu húsakynnum Hörpu, nánartiltekið í Kaldalóni. Námskeiðið miðast við langt komna nemendur í miðnámi og nemendur í framhaldsnámi. Námskeiðið er EPTA meðlimum og nemendum þeirra að kostnaðarlausu en fyrir aðra kostar virk þátttaka kr.3.500,- og áheyrn kr.1.000,-.

Umsóknarfrestur fyrir virka þátttöku er til 6. maí. Umsóknareyðublöð fyrir þátttöku er hægt að nálgast hér að neðan. Takmarkaður fjöldi nemenda kemst að og ef til þess kemur áskiljum við okkur rétt til þess að velja úr hópi umsækjenda. Allir verða látnir vita fyrir 13. maí.

UMSÓKN UM NÁMSKEIÐ EDDU ERLENDSDÓTTUR

Aðalfundur EPTA á Íslandi

Aðalfundur EPTA á Íslandi verður haldinn þriðjudaginn 29.mars 2011 kl.20 í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, Strandgötu 51. Fyrir utan hefðbundin “skemmtileg” aðalfundarstörf eins og að hlýða á skýrslu formanns og skoða reikninga félagsins, er ætlunin að hittast, ræða saman um það sem framundan er og hvert við viljum stefna. Endilega látið ekki þetta tækifæri til að hafa áhrif á störf félagsins fram hjá ykkur fara.

hlýjar kveðjur,
Stjórnin

Nýr tengill um keppnir

Hér er nýr tengill sem inniheldur upplýsingar um hinar ýmsu hljóðfærakeppnir! www.bakitone.com

Fyrsta alþjóðlega Albert Mamriev Tónlistarkeppnin

Fyrsta alþjóðlega Albert Mamriev Tónlistarkeppnin verður haldin í Braunschweig í Þýskalandi dagana 23. – 25. September, 2011. Keppnni er opin öllum hlóðfæraleikurum, ekki bara píanistum. Keppendur geta tekið þátt sem einleikarar eða með fleirum í hópi (Ensamble) og eru ekki bundnir við að leika klassíska tónlist heldur eru allir stílar leyfilegir svo sem Jazz, Rokk, Pop, Klassík, Klezmer ofl.
Umsóknarfrestur er til 15.júní 2011. Allar nánari upplýsingar er að finna á www neuesterne.org og www.albertmamriev.com

Alþjóðlega píanókeppnin í Tallinn

Alþjóðlega píanókeppnin í Tallinn (Tallinn International Piano Competition) verður haldin í annað sinn þann 9. nóvember 2011. Keppnin er skipulögð af EPTA Eistlandi. Gaman er að geta þess að árið 2011 er Tallin ein af menningarborgum Evrópu og af því tilefni er keppnin hluti af menningarprógrammi borgarinnar svo mikið verður um dýrðir og meira að segja peningaverðlaun í boði!
Keppendur verða að vera fæddir á bilinu 9.nóvember 1979 og 17.nóvember 1995. Umsóknarfrestur er til 1.júlí 2011. Allar nánari upplýsingar er að finna á http://www.tallinn2011.ee/762/tallinn-international-pianists-competition?event=394 og umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á síðunni www.tipc.ee

Nánari upplýsingar um píanóhelgina í LHÍ 5. - 6. febrúar

Hér getið þið nálgast upplýsingar um annars vegarÞáttakendur og verk og hins vegar stundaskrá píanóhelgarinnar.

Mótmælafundur

Kæru félagsmenn,
Næsta þriðjudag, 1. febrúar kl. 13.30, verður mótmælafundur við Ráðhús Reykjavíkur. Tilefnið er niðurskurður á fjárveitingum til tónlistarskóla í borginn. Tónlistarskólastjórar hafa átt fjölmarga fundi með ráðamönnum borgarinnar í þeirri von að ná eyrum þeirra og að þeirrar sanngirni væri gætt að við sættum ekki meiri niðurskurði en aðrar menntastofnanir á menntasviði. Þetta hefur ekki borið neinn árangur - síður en svo, því að í tíufréttum í gærkvöldi var boðaður enn meiri niðurskurður skólaárið 2011-2012. Ef þessi niðurskurður gengur eftir er ljóst að fjölmargir nemendur þurfa að hverfa frá námi og einhverjir tónlistarskólar þurfa að hætta rekstri. Því hvetjum við ykkur til að mæta á fundinn og láta nemendur ykkar og foreldra þeirra fjölmenna.
Stjórnin.

Tenglar á Bandaríska píanótónlist fyrir börn

Ef þið smellið á tengilinn hérna fáið þið upp áhugaverðan lista af vefsíðum! Njótið vel!

Selið á Stokkalæk auglýsir um eftir umsóknum um dvalarstyrki

Selið á Stokkalæk auglýsir um eftir umsóknum um dvalarstyrki á árinu 2011. Með dvalarstyrkjum er átt við endurgjaldslaus afnot af Selinu tiltekinn tíma til kennslu eða æfinga- og tónleikahalds. Umsóknir skulu hafa borist fyrir 1. febrúar næstkomandi. Sótt er um á heimasíðunni www.stokkalaekur.is undir flipanum Styrkir og bókanir. Á heimasíðunni er einnig að finna upplýsingar um aðstæður í Selinu.

Píanódeild LHÍ kynnir Píanóhelgi 5.-6. febrúar 2011

Píanódeild LHÍ kynnir Píanóhelgi 5.-6. febrúar 2011. Á dagskrá píanóhelgar Listaháskóla Íslands verða námskeið og einkatímar með kennurum skólans, píanóleikurunum Halldóri Haraldssyni, Nínu Margréti Grímsdóttur og Peter Máté, fyrirlestrar og spjall um efni sem tengjast píanóinu s.s. verk, tækni og tónskáld auk sýninga DVD. Tónleikar verða haldnir sem hluti píanóhelgarinnar þar sem þátttakendur koma fram í sal Listaháskólans. Dagskráin hefst kl. 10:00 og stendur til kl. 18:00 báða dagana, þátttaka píanónema án endurgjalds, léttar veitingar seldar á vægu verði. Námskeiðin og einkatímarnir eru ætlaðir nemendum á framhalds- og háskólastigi. Píanóhelgin er jafnframt opin áheyrendum úr hópi áhugafólks um píanóleik. Umsóknarfrestur til 21.janúar 2011. Vinsamlegast hafið samband við: halldorharalds@gmail.com, ninam@lhi.is eða peter@lhi.is

Námskeið

Við viljum kynnar fyrir félagsmönnum tvö áhugaverð námskeið, International Piano Festivals 2011, sem haldin verða í TORRELODONES (MADRID)á Spáni í júlí í sumar. Hið fyrra verður haldið dagana 10.-17. júlí en hið síðara 17.-24.júlí. Leiðbeinandi á námskeiðinu er hinn virti Solomon Mikowsky sem er prófessor við Manhattan School of Music og Chicago College of Performing Arts. Umsóknarfrestur er til 1.júní en mælt er með því að sækja fljótt um þar sem aðeins 12 pláss eru í boði fyrir hvort námskeið. Nánari upplýsingar fást hjá: International Piano Festivals, Suite 5G 390 Riverside Drive, New York, NY 10025-1897 Tel: {00} 1-212-666-5377 Fax: {00} 1-212-666-6779 Email: interpianofest@hotmail.com

Velheppnað námskeið Albert Mamriev á vegum EPTA

Dagana 10. og 13. október hélt rússnesk-ísraelski píanóleikarinn Albert Mamriev námskeið á vegum EPTA Ísland. Hið fyrra var haldið í sal Tónskóla Sigursveins og spiluðu þar fyrir Mamriev 11 nemendur hinna ýmsu EPTA félaga. Aðsókn að námskeiðinu var mjög góð, um 50 manns mættu og almenn ánægja ríkjandi. Á Akureyri spiluðu 5 nemendur fyrir Mamriev og þar gekk sömuleiðis námskeiðið eins og best verður á kosið. Gaman að vita af þessum góða möguleika sem salurinn Hamrar er fyrir norðan. Eins viljum við þakka Tónskóla Sigursveins kærlega fyrir að lána okkur sína frábæru aðstöðu. Mamriev bauð einnig upp á einkatíma og var það kostur sem mjög margir nýttu sér, bæði nemendur og kennarar. Hér meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá námskeiðinu í Reykjavík. Smellið á myndina!

Námskeið Albert Mamriev á vegum íslandsdeildar EPTA

Tilvalið tækifæri að fylgjast með á Tónlistarhátíð unga fólkisns

Tilvalið tækifæri að fylgjast með píanókennslu hjá Önnu Guðnýju, Peter Maté og Dinielu Hlinkova - sjá nánar hér!

Alþjóðleg píanókeppni í Róm

Alþjóðleg píanókeppni verður haldin í Róm á Ítalíu dagana 10. til 20. október á þessu ári. Umsóknarfrestur fyrir þáttöku er til 20.september 2010. Sjá nánar undir tenglinum  VIÐBURÐIR - KEPPNIR hér til hliðar.

Næsta EPTA ráðstefna í Lubljana

Ætla ekki píanókennarar að fjölmenna á 32. ráðstefnu EPTA  í Lubljana Slóveníu? Hér er tengill á heimasíðuna þeirra

Hér er dagskráin: http://www.epta.si/eng/?page_id=8

Styrkur til framhaldsnáms í píanóleik

Minningarsjóður um Birgi Einarson apótekara mun á næstunni veita styrk til píanóleikara, sem er í framhaldsnámi erlendis í klassískum píanóleik eða er að hefja slíkt nám. Með umsókn skulu fylgja greinargóðar upplýsingar um tónlistarnám og eftir atvikum starfsferil umsækjanda og fyrirhugað framhaldsnám. Þá skal fylgja hljóðritun af leik umsækjanda á tónleikum eða myndbandsupptaka.Umsóknum skal skila fyrir 5. júní 2010 til formanns sjóðsstjórnar, Ingu Ástu Hafstein, Stokkalæk, Rangárþingi ytra, 851 Hella.

Námskeið á Íslandi í sumar

Við bendum sérstaklega á námskeiðin Við Djúpið og Tónlistarhátíð Unga fólksins í Kópavogi. Nánar undir "tenglar" hér til vinstri - námskeið !

Nýr tengill...

Skoðið þennan tengil www.pianovision.com/ þarna kennir ýmissa grasa, m.a. video.

Fréttir af aðalfundi EPTA

Kæru Epta félagar!

Aðalfundur Íslandsdeildar Epta var haldinn á Lækjarbrekku 20. febrúar síðastliðinn. Þóra Fríða formaður sagði frá síðastliðnu ári í starfi félagsins og bar þar hæst IV. Píanókeppni Íslandsdeildar Epta í Salnum í Kópavogi 4.- 8. nóvember 2009. Stjórnarkjör og stjórnarskipti fóru fram: Þóra Fríða lét af störfum sem formaður eftir mjög farsæla og dugmikla stjórnun. Elín Anna gaf ekki kost á sér í stjórn áfram og eru þeim báðum færðar miklar þakkir fyrir frábært og afar fórnfúst starf í þágu Epta á Íslandi. Brynhildur situr áfram í stjórninni. Nýjar í stjórn eru Anna Rún Atladóttir fyrrum nemandi Carolu Grindea og Ingunn Hildur Hauksdóttir og eru þær boðnar velkomnar til starfa. Stjórnin hefur skipt með sér störfum og er nýr formaður Anna Rún, ritari Ingunn Hildur og gjaldkeri Brynhildur. Kristinn Örn er áfram vefsíðustjóri og eru félagsmenn hvattir til að nýta sér heimasíðuna og senda inn fréttir og áhugavert efni. Guðríður Sigurðardóttir gaf áfram kost á sér sem endurskoðandi félagsins. Félagsgjöld Epta verða innheimt á næstu dögum og fer það fram í gegnum bankainnheimtu/netbanka félagsmanna eða c gíró þar sem þess hefur verið óskað. Gjaldið er 4000 kr. eins og síðast.

Páskakveðjur, stjórn Íslandsdeildar Epta

Nýr tengill...

Skoðið þennan tengil www.pianotechnique.net þar eru ýmsar greinar um píanótækni

Vinningshafar í EPTA píanókeppninni 2009

I. flokkur, 14 ára og yngri

1. verðlaun: Lilja Cardew
2. verðlaun: Auður Garðarsdóttir
3. verðlaun: Erla Rut Árnadóttir

II. flokkur, 18 ára og yngri

1. verðlaun: Gunnhildur Eva Gunnarsdóttir
2. verðlaun: Egill Sigurðarson
3. verðlaun: Njáll Skarphéðinsson

III. flokkur, 25 ára og yngri

1. verðlaun: Hákon Bjarnason
2. verðlaun: Jane Ade Sutarjo
3. verðlaun: Elín Arnardóttir

Sérstök verðlaun fyrir besta flutning á nýju íslensku verki eftir Tryggva M.Baldvinsson: Lilja Cardew

Myndir

              Svipmyndir frá keppninni!                            Myndir frá lokahátíð keppninnar

Úrslit IV. Píanókeppni Epta, laugardaginn 7. nóvember 2009

I. flokkur, 14 ára og yngri

10:00-10:10 Þórður Arnar Árnason
10:10-10:20 Erla Rut Árnadóttir
10:20-10:30 Emil Draupnir Baldursson
10:30-10:40 Kristín Harpa Jónsdóttir
10:40-10:50 Auður Garðarsdóttir
10:50-11:00 Lilja Cardew

Stutt hlé 11:00 – 11:15

II. flokkur, 18 ára og yngri

11:15–11:30 Njáll Skarphéðinsson
11:30-11:45 Gunnhildur Eva Gunnarsdóttir
11:45-12:00 Arnbjörg Arnardóttir
12:00-12:15 Egill Sigurðarson
12:15-12:30 Ása Dóra Gylfadóttir

Hlé 12:30 – 13:30

III. flokkur, 25 ára og yngri

13:30-14:00 Birgir Þórisson
14:00-14:30 Jane Ade Sutarjo
14:30-15:00 Elín Arnardóttir
15:00-15:30 Sólborg Valdimarsdóttir
15:30-16:00 Hákon Bjarnason

Píanókeppni EPTA 2009 - nánari dagskrá

       1. flokkur - miðvikudag

       2. flokkur - miðvikudag og fimmtudag

       3. flokkur fimmtudag

Píanókeppni EPTA 2009

IV. Píanókeppni Íslandsdeildar Epta fer fram í Salnum í Kópavogi 4.- 8. nóvember næstkomandi.
Eins og fram hefur komið er keppnin ætluð píanónemendum 25 ára og yngri og er henni skipt upp í þrjá flokka; 1. flokkur 14 ára og yngri, 2. flokkur 18 ára og yngri og 3. flokkur 25 ára og yngri.

Um 40 nemendur víðsvegar að af landinu taka þátt, og fer forkeppni fram miðvikudaginn 4. nóvember og fimmtudaginn 5. nóvember. Laugardaginn 7. nóvember fara svo fram úrslit en þar koma fram 5 nemendur í hverjum flokki sem komist hafa áfram. Keppnisdagana hefst leikurinn kl. 9 og stendur fram undir kl.18. Lokahóf og verðlaunaafhending fer fram sunnudaginn 8. nóvember kl.14.

Professor Diane Andersen frá Belgíu mun leiða dómnefndina sem skipuð er Halldóri Haraldssyni, Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur, Þorsteini Gauta Sigurðssyni og Jónasi Sen. Tryggvi M. Baldvinsson hefur samið glænýtt verk sem er fyrir yngsta flokk keppninnar að þessu sinni. Ókeypis er fyrir nemendur tónlistarskólanna að fylgjast með. Aðrir greiða 1000 kr.fyrir heilan dag/ 500 kr. fyrir hálfan dag.

 

Víkingur Heiðar leiðbeinir píanónemendum

 

Vefstjóri kíkti inn á Masterklassa hjá Víkingi Heiðari á Tónlistarhátíð unga fólksins    í Salnum í Kópavogi.

Nýtt tónlistarsetur a Suðurlandi

Kíkið á Selið á Stokkalæk, stórmyndarlegt nýtt tónlistarsetur vel búið slaghörpum sem rekið er af hjónunum Ingu Ástu Hafstein og Pétri Hafstein.ss

Frá EPTA ráðstefnu í Prag í Júlí 2009

Kristinn Örn fór á ráðstefnuna og hér er frásögn af því helsta sem fyrir augu og eyru bar.

Andlát

Carole Grindea hvatamanneskja og stofnandi EPTA lést þann 10. júlí 95 ára að aldri. Lesa má hér minningargrein um Carole sem birtist í Telegraph.

Ráðstefna EPTA og önnur námskeið

Tema EPTA ráðstefnunnar að þessu sinni er "music from my country", og mun Snorri Sigfús Birgisson fara út og kynna þar tónlist sína. Einnig er píanókeppni vikuna áður. Upplýsingar um þetta allt finnið þið á þessarri síðu Dvorak-félagsins.

Ýmislegt fleira er á döfinni í sumar.
Anna Málfríður verður með

Við bendum á heimasíðu hátíðarinnar Við djúpið en þar er Vovka Askenazy að kenna.

Á tónlistarhátíð unga fólksins 2009 í ágúst verður Víkingur Heiðar Ólafsson að kenna og einnig verða þar tveir öflugir ungir norsksir píanistar með tilsögn í píanósamleik.

Tónleikar og námskeið Codispoti 27. feb.-1. mars

Dagskrá(pdf-skjal)

Píanókeppni EPTA 2009

Bæklingur um píanókeppnina á pdf-formi

Skylduverk fyrir 1. flokk í píanókeppni EPTA hér

Píanókeppni EPTA 2009

Bæklingur um píanókeppnina á pdf-formi

Enn og eftur píanótónleikar...

Anna Guðný Guðmumdsdóttir ætlar að spila “Vingt regards sur l´enfant-Jésus” (Tuttugu tillit til Jesúbarnsins) eftir Olivier Messiaen aftur, nú í Laugarborg í Eyjafirði sunnudaginn 26. október kl. 15:00. Norðlendingar ættu ekki að missa af þessum viðburði...

Píanótónleikar...ekki missa af...

Helga Bryndís Magnúsdóttir á Kjarvalsstöðum miðvikudaginn 15. okt kl. 20.00 sjá nánar fiston

Alfredo Perl í Salnum laugardaginn 18. okt. kl. 17.00, sjá nánar salurinn.is

Aðalfundur - félagsfréttir

Aðalfundur EPTA var haldin 29.9 í sal Tónskóla Sigursveins á Engjateig.

Mættir voru 6 manns (Sigríður Ása,Hafdís Kristinsdóttir,Hrafnhildur Steinarsdóttir,Halldóra Aradóttir,Elín Anna Ísaksdóttir,Vilberg Viggóson,)fyrir utan stjórn. Farið var yfir verkefni sl. árs, meðal annrs um fræðsluerindi Kristins Arnar i nóvember "Bland í poka" og svo erindi Halldórs Haraldssonar á Lækjarbrekku í febrúar 2009 um undirbúning fyrir próf og keppni. Þóra Fríða sagði frá ráðstefnu sem hún sótti í Potsdam 2-5 maí 2008 á vegum Þýskalandsdeildar Epta .

Á næstunni er það svo finnska þingið sem haldið verður í Salnum í Kópavogi 17-19 okt. og það samstarfsverkefni Tónskóla Sigursveins, Tónlistarskólans í Reykjavík, Tónlistarskóla Kópavogs og Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og Íslandsdeildar Epta. Svo er hafin undirbúningur að 4 píanókeppni Íslandsdeildar Epta sem haldin verður 4-8 nóvember 2009 í Salnum í Kópavogi. Bæklingur er í vinnslu. Rætt var um að fá Hrafnhildi Steinarsdóttur til að skrá sögu félagsins þegar færi gefst. Judith Þorbergsson gaf ekki kost sér í stjórn áfram og var Elín Anna Ísaksdóttir kosin í stjórn og bjóðum við hana velkomna til starfa. Rætt var um að efla samskipti við landsbyggðina og verður Daníel Þorsteinsson tengiliður við Norðurland. Kristinn Örn er sjálfskipaður vefsíðustjóri og eru störf hans ómetanleg fyrir félagið. Guðríður Sigurðardóttir verður endurskoðandi fyrir reikninga félagsins. Fjörlegar umræður voru á fundinum, og var boðið upp á kaffi og með því!

ÞFS

Píanóþing 17. - 19. okt. 2008 í Salnum Kópavogi

Dagana 17.-19. okt. 2008 munu tveir helstu píanókennarar frá Síbelíusarakademíunni í Helsinki sækja okkur heim. Þetta eru þær Eeva Sarmanto-Neuvonen og Rebekka Angervo. Þær munu kynna fyrir okkur finnska tónlistarskólakerfið og uppbyggingu píanókennaranáms í Síbelíusarakademíunni. Auk þess verður kynning á finnsku námsefni sem Eeva er einn af höfundunum að og finnskri píanótónlist. Hér fylgja drög að dagskrá:

Dagskrá

SKRÁNING á þingið

Þáttakendalisti

Aðgangseyrir er 10.000 kr. fyrir alla helgina / 5.000 kr. á dag. Frítt fyrir nemendur. Við bendum á endurgreiðslu úr Endurmenntunarsjóði KÍ og FÍH. Öll gögn verða á staðnum.

Gaman væri að sjá sem flesta tónlistarkennara af öllu landinu. Hér gefst okkur tækifæri til að hittast, ræða málin og fá innblástur frá hinni rómuðu finnsku tónlistarhefð.

Að Píanóþingi standa Íslandsdeild EPTA, Tónlistarskóli Hafnarfjarðar, Tónlistarskóli Kópavogs, Tónlistarskólinn í Reykjavík og Tónskóli Sigursveins D. Kristinssonar.

Eeva Sarmanto-Neuvonen nam píanóleik og –kennslufræði við Sibeliusarakademíuna í Helsinki. Hún stundaði framhaldsnám í Columbia University í New York og San Diego University.
Eeva hefur verið iðin við námsefnisgerð fyrir píanónemendur. Hún er höfundur Finnska Píanóskólans. Einnig hefur hún samið margar aðrar píanókennslubækur t.d. Happy Animal Pictures, Seapearls, 100 etudes, Magic Chords, Play it Again fyrir fullorðna nemendur og Sonatas and Sonatinas for piano.
Eeva er deildarstjóri píanókennaradeildar Sibeliusarakademíunnar þar sem hún kennir píanóleik og –kennslufræði. Hún er stofnandi Eira tónlistarskólans í Helsinki. Hún hefur verið varaformaður Finnlandsdeildar EPTA frá 1977.

Píanóleikarinn Rebekka Angervo hóf píanónám í tónlistarskólanum í Espoo í Finnlandi. Þaðan lá leiðin í Sibeliusarakademíuna í Helsinki þar sem hún lauk MuM prófi í píanóleik og píanókennaraprófi. Eftir það hélt hún til frekara framhaldsnáms í París. Rebekka hefur komið fram á tónleikum í Skandinavíu, Evrópu og Suður-Ameríku og unnið til verðlauna í tónlistarkeppnum á Ítalíu og í Frakklandi.
Rebekka stundar nú doktorsnám við Sibeliusarakademíuna í Helsinki þar sem hún kennir píanókennslufræði. Hún starfar einnig sem píanókennari við tónlistarskólann í Espoo. Nemendur hennar hafa unnið til margra verðlauna í píanó- og kammertónlistarkeppnum jafnt innanlands sem utan. Rebekka heldur einnig reglulega fyrirlestra og er gestakennari í Finnlandi og víðar í Evrópu.

Anna Guðný leikur Messiaen...

Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari leikur
“Vingt regards sur l´enfant-Jésus” Tuttugu tillit til Jesúbarnsins” eftir Olivier Messiaen (1908-1992)

Tónleikar í Langholtskirkju laugardaginn 6. september kl. 11 f.h., heildarflutningur.
Tónleikar sama dag kl. 15:15, valdir kaflar leiknir, u.þ.b. klukkustundarlangir.

Námskeið

Námskeið í Píanóleik verður haldið í Tónskóla Sigursveins, Reykjavík 11.- 21 ágúst 2008. Námskeiðið er ætlað nemendum frá miðstigi til háskólastigs. Aðaláhersla verður lögð á góða tækni og slökun í píanóleik. Fyrirlestur, einkatímar og hóptímar. Leiðbeinandi: Anna Málfríður Sigurðardóttir píanóleikari. Nánari upplýsingar um tilhögun námskeiðsins, kostnað og innritun veitir: Anna Málfríður Sigurðardóttir
Sími: GSM: 862-4764. Netfang: annams@ismennt.is
Nánar hér. Umsóknarblað.

Nýr geisladiskur - Halldór Haraldsson

Út er kominn þrefaldur geisladiskur þar sem farið er yfir feril Halldórs Haraldssonar píanóleikara en hann fagnaðI sjötugs afmæli í febrúar 2007. Diskarnir eru í vandaðri pappaöskju og fylgir veglegur 44
síðna bæklingur með fjölda ljósmynda frá ferli Halldórs.Diskarnir innihalda einleiksverk, kammerverk og konserta með S.Í. Allar upptökur eru úr safni RÚV, sú elsta frá árinu 1964. Þessi útgáfa (3 diskar) stendur ykkur til boða á tilboðsverði kr. 2.500,- (smásöluverð í verslun verður rúmlega 3.000,-)
Útgáfan er styrkt af Félagi íslenskra tónlistarmanna, Kópavogsbæ, Ríkisútvarpinu ohf. og Tónlistarsjóði auk þess sem Friðrik Steinn Kristjánsson lyfjafræðingu studdi verkefnið með mikilverðu framlagi. Sendið pöntun til polarfonia@itn.is og diskarnir koma um hæl.

Diskur 1
J. S. Bach - þrjár Prelúdíu og Fúgur,Bach/Siloti - Prelúdía í h-moll,Þorkell Sigurbjörnsson - Der wohltemperierte Pianist.R. Schumann - Sónata í g-moll. F. Liszt - Gosbrunnarnir í Villa d'Este
F. Liszt - Ballaða nr. 2. F. Chopin - Polonaise-Fantaisie í As-dúr

Diskur 2
H. Dutilleux - Sónatína fyrir flautu og píanó (ásamt Robert Aitken á
flautu). N. Skalkottas - Sónatína fyrir selló og píanó (ásamt Hafliða Hallgrímssyni á selló)
F. Schubert - Fantasía í f-moll (4 hent ásamt Gísla Magnússyni). L. van Beethoven - Píanótríó í Es-dúr (Tríó Reykjavíkur)

Diskur 3
L. van Beethoven - Píanókonsert í G-dúr (S.Í. Stjórn. J.-P. Jacquillat) F. Liszt - Totentanz (S.Í. stjórn. Páll P.). M. Ravel - Konsert í G-dúr (S.Í. stjórn. J.-P. Jacquillat)

Við djúpið

Við bendum á að 6, tónlistarhátiðin Við Djúpið 17.-24. júní er með metnaðarfull námskeið og kennara.. Sjá hér

Keppni EPTA-Belgíu

EPTA-BELGÍA W-B (forseti Diane Andersen) kynnir í níunda sinn píanókennonina "Rencontres Internationales des Jeunes Pianistes" fyrir ungt fólk frá 0 to 24 ára. Keppnin er í fjórum flokkum og allar nánari upplýsingar hér og á www.epta.be

Tónleikar og Masterklass

Rússneski píanóleikarinn og kennarinn Shoshana Rudiakov mun halda masterklassa
fyrir nemendur og kennara föstudaginn 28. mars kl. 10:00 - 12:00 og kl. 16:00 - 19:00.
Masterklassarnir eru opnir öllum kennurum og nemendum sem áhuga hafa. Klassarnir fara
fram í Sölvhól, sal Listaháskólans við Sölvhólsgötu.

Shoshana Rudiakov var nemandi hins þekkta rússneska píanóleikara, Yakov Flier, við
Tónlistarháskólann í Moskvu í 6 ár. Hún hefur haldið tónleika og masterklassa víða um heim
og hefur undanfarin ár verið prófessor og konrektor við Tónlistarháskólann í Stuttgart.

Hún mun leika á tónleikum í Salnum ásamt Guðnýju Guðmundsdóttur fimmtudaginn 27. mars
kl. 20:00. Þær munu m.a. leika hina þekktu sónötu César Francks fyrir fiðlu og píanó.

IPF kynnir Mikowsky's Summer Piano Courses

Sjá: http://www.internationalpianofestivals.org

EPTA GREECE 1st International Piano Forum 2008

Invitation: EPTA GREECE 1st International Piano Forum September 12-14th

Hótelupplýsingar .....Skráningarblað

Frá fræðslufundi 23. febrúar

Halldór Haraldsson ræddi um undirbúning fyrir próf og keppnir, og miðlaði af sinni reynslu sem kennari og dæmandi í keppnum. Margt fróðlegt kom til umræðu og kryddaði Halldór efnið með skemmtilegum sögum eins og hans er von og vísa!

Námskeið á Spáni og í Frakklandi í Júlí...

http://www.internationalpianofestivals.org/

Masterklass í Noregi

í ágúst, nánari upplýsingar hér...

Matthijs Verschoor, piano og Mayke Rademakers, cello
www.mayke-matthijs.com

Gestur í Listaháskólanum

ZUZANA ŠTIASNA PAULECHOVÁ – SLÓVAKÍA

Fyrirlestur , þriðjudaginn 19.febr kl. 18: Slóvakísk píanótónlist í samhengi við sögu Slóvaka
________________________________________________________________________

Tónleikar í Sölvhóli, miðvikudaginn 20.febr kl.20

Efnisskrá
W.A. Mozart : Sónata í F-dúr KV 280
Assai Allegro, Adagio, Presto
F.Liszt : Fantasia quasi Sonata ,, Apres une lecture du Dante“
Eugen Suchon : Žial , Škoda ta šuhajko , Muzikanti s gajdošom
Eugen Suchon : Horalská suita
Rapsódia, Nokturno, Danza slovacca
M.Ravel : Pavane pour une Infante defunte
M.Ravel : La Valse

Master class í Sölvhóli, föstudaginn 22. febr. kl.16-19. Nemendur LHÍ leika verk eftir Beethoven, Prokofiev, Schumann, Schubert o.fl.

Næsti fræðslufundur...

HALLDÓR HARALDSSON HELDUR ERENDI UM UNDIRBÚNING NEMENDA FYRIR KEPPNIR/PRÓF
Hittumst yfir léttum hádegisverði í efri sal Lækjarbrekku laugardaginn 23. febrúar kl. 13 Vinsamlega skráið ykkur á eitthvert eftirtalinna netfanga svo áætla megi fjöldann; baska@mmedia.is, thorafrida@hotmail.com, jusig@mi.is

Góðir gestir frá Finnlandi

17.-19. október næstkomandi er von á góðum gestum frá Finnlandi, Eevu Sarmato-Neuvonen og Rebekku Angervo, sem báðar eru virtir kennarar við píanódeild Sibeliusarakademíunnar. Í sameiningu munu þær kynna píanóskóla Eevu og halda erindi um finnska tónlistarskólakerfið og tónlistarkennaramenntun í Finnlandi. Einnig verður fyrirlestur og masterklass með finnskri tónlist svo og almennur masterklass.

Þetta er samstarfsverkefni Íslandsdeildar Epta og fjögurra tónlistarskóla; Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, Tónlistarskóla Kópavogs, Tónlistarskólans í Reykjavík og Tónskóla Sigursveins. Bækur Eevu munu verða til sýnis í Tónastöðinni, og eru nú þegar einhverjar bækur til, en unnið er að því að eiga sýniseintak af öllum skólanum. Nánar má lesa um námskeiðið síðar á heimasíðu Epta; epta.is

8 landa samstarf...

Komið hefur verið á fót átta landa verkefni um tónlistarkennslufræði, styrkt af Leonardo da Vinci, starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins. Epta-bretland er eitt af mörgum félögum sem eru aðilar að verkefninu, en einnig koma að því leiðandi háskólar samstarfslandanna. Meiri upplýsingar hér!

Nýtt á vefnum - sjá tímarit undir tenglar...

Frá síðasta fundi!

Ný hljómdiskur

Þorsteins Gauta Sigurðssonar er komin út þar sem hann leikur:
S. Barber - Sónata op. 26, Ríkarður Páls. - Píanósvítla I, Lárus Gríms. - Farvegir, S. Prokoffíef - Sónata op. 83

EPTA meðlimið geta pantað diskinn beint hjá útgefanda (Þórarinn Stefánsson - Polarfonia classics) á kr. 1500,-

Fræðslu- og umræðufundur

verður mánudaginn 26 nóv. nk. kl. 20.00 í sal
Allegro Suzukitónlistarskólans að Tranavogi 5.

Kristinn Örn Kristinsson mun halda erindi sem hann nefnir “Týnt úr
pokahorninu” og Þóra Fríða og Judith Þorbergsson segja frá nýafstaðinni
Epta ráðstefnu sem haldin var í Novi Sad í Serbíu 2.-5. nóvember
síðastliðinn.

Við ætlum að hafa kaffi á könnunni og væri gaman að sjá sem flesta og
stefnum við að því að virkja fleiri píanókennara til skrafs og ráðagerða um
framhaldið.

Við höfum verið að vinna í að fá netföng epta félaga og auðveldar það allt
upplýsingaflæði. Þeir sem vilja koma einhverju spennandi efni til félaga
eða til að setja á heimasíðuna www.epta.is geta haft samband við Kristinn Örn vefstjóra félagsins krik@islandia.is og hann setur það inn á síðuna.

Á síðasta aðalfundi urðu breytingar í stjórn félagsins. Arndís Björk hefur
látið af störfum í stjórn félagsins og viljum við þakka henni sérstaklega
fyrir frábært starf á liðnum árum. Ný í stjórn er Judith Þorbergsson og
hlökkum við til að takast á við spennandi verkefni og samstarfs á vegum Epta
með Judith.

Bestu kveðjur
f.h. stjórnar Íslandsdeildar Epta
Þóra Fríða
Brynhildur
Judy

Fréttir frá aðalfundi Epta

Fundurinn var haldinn á Hótel Borg þann 20. september (lesa meira)

Námskeið í ljóðundirleik

Ástæða er til að benda á nýtt nám í ljóðameðleik, sjá hér á heimasíðu Söngskóla Sigurðar Demetz

29. þing EPTA

Verður haldið í Novi Sad í Serbíu þann 2. - 5. nóvember 2007. Þema ráðstefnunnar er: EPTA í fortíð, nútíð og framtíð.

Námskeið í píanóleik

Píanónámskeiði Frestað!!
Píanónámskeiðinu sem stóð til að Geoffrey Douglas Madge héldi á vegum
Tóneyjar komandi helgi, hefur verið frestað!
(nánar)

Píanónámskeið Geoffrey Douglas Madge

Dagana 21. - 23. september næstkomandi heldur Geoffrey Douglas Madge
námskeið fyrir píanóleikara á vegum Tóneyjar. Skráning og frekari
upplýsingar á www.toney.is og toney@toney.is

(nánar)

Tónlistarefni á netinu

Ég veit ekki hvort þið eruð öll búin að uppgötva vefinn youtube.com, en þar miðla hinir ýmsu netverjar myndefni sem þeim finnst áhugavert. Ef við setjum t.d. Argerich í leitarretinn kemur eftirfarandi upp:(smella) - eða Richter (smella hér). Notið hugmyndaflugið - góða skemmtun!!

Smágrín og gaman hér...

Námskeið í Píanóleik

Námskeið í píanóleik verður haldið í Tónskóla Sigursveins, Reykjavík 28. maí- 7. júní 2007. Leiðbeinandi: Anna Málfríður Sigurðardóttir píanóleikari

(nánar)

Píanódagar 9.–12. mars í Salnum

Ítalski píanóleikarinn Domenico Codispoti heldur einleikstónleika í Salnum föstudaginn 9. mars næstkomandi kl. 20.00.

Laugardag og sunnudag, 10. og 11. mars, verður Codispoti leiðbeinandi ungra píanóleikara á meistaranámskeiði í Salnum. Það stendur yfir frá kl. 9.30 til 17 á laugardeginum og kl. 9.30 til 16 á sunnudeginum. Námskeiðið er öllum opið og án endurgjalds.

Það eru Tónlistarskóli Hafnarfjarðar, Tónlistarskóli Kópavogs og Tónskóli Sigursveins D. Kristinssonar sem standa að Píanódögunum. (nánar hér)

III. Píanókeppni Íslandsdeildar EPTA

í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs, 8. – 12. nóvember 2006

ÚRSLIT
Miðnám

1. Jóhanna Eir Björnsdóttir
2. Stefanía Ósk Margeirsdóttir
3. Gauti Baldvinsson

Framhaldsstig

1. Elín Arnardóttir
2. Þóra Kristín Gunnarsdóttir
3. Árni Freyr Snorrason

(Árni Freyr fékk auk þess verðlaun fyrir besta flutning á verki Snorra Sigfúsar)

Háskólastig

1. Guðrún Dalía Salomonsdóttir
2. Birna Hallgrímsdóttir
3. Hákon Bjarnason


Meira um keppnina

Aftur á upphafsíðu