Námskeið Nadiu Lasserson 2. október 2011

Sunnudaginn 2. október kom Nadia Lasserson, dóttir Carolu Grindea stofnanda EPTA, í heimsókn til okkar og hélt námskeið fyrir píanókennara. Nadia hefur sérhæft sig í að leika kammermúsik og hefur viðað að sér miklu efni af kammertónlist á öllum stigum, allt frá grunnnámi til framhaldsnáms. Hún hefur gefið út bók um efnið sem kallast “Piano needn´t be lonely, A guide to Chamber Music Repertoire for Young Pianists and Multipiano repertoire”. Á námskeiðinu fór hún yfir hin ýmsu kammerverk m.a. verk fyrir 6, 8, 12 og 16 hendur! Þátttaka á námskeiðinu var mjög góð. Væri ekki ráð að hittast reglulega og lesa af blaði? Kynnast því efni sem við öll eigum í okkar fórum og deila því með fleirum. Þetta gæti orðið bæði gagnlegt og skemmtilegt. Þessari hugmynd er hér með kastað fram! Hér eru fleiri myndir

Velheppnaš nįmskeiš Albert Mamriev į vegum EPTA

Dagana 10. og 13. október hélt rśssnesk-ķsraelski pķanóleikarinn Albert Mamriev nįmskeiš į vegum EPTA Ķsland. Hiš fyrra var haldiš ķ sal Tónskóla Sigursveins og spilušu žar fyrir Mamriev 11 nemendur hinna żmsu EPTA félaga. Ašsókn aš nįmskeišinu var mjög góš, um 50 manns męttu og almenn įnęgja rķkjandi. Į Akureyri spilušu 5 nemendur fyrir Mamriev og žar gekk sömuleišis nįmskeišiš eins og best veršur į kosiš. Gaman aš vita af žessum góša möguleika sem salurinn Hamrar er fyrir noršan. Eins viljum viš žakka Tónskóla Sigursveins kęrlega fyrir aš lįna okkur sķna frįbęru ašstöšu. Mamriev bauš einnig upp į einkatķma og var žaš kostur sem mjög margir nżttu sér, bęši nemendur og kennarar. Hér mešfylgjandi eru nokkrar myndir frį nįmskeišinu ķ Reykjavķk. Smelliš į myndina!

Nįmskeiš Albert Mamriev į vegum ķslandsdeildar EPTA

Píanónámskeið á vegum EPTA

Í október mun rússnesk-ísraelski píanóleikarinn Albert Mamriev, dósent við Tónlistar- og leiklistarháskólann í Hannover, halda tvö námskeið ( Masterclass) á vegum íslandsdeildar EPTA.

Hið fyrra verður haldið í Reykjavík sunnudaginn 10. október í Tónskóla Sigursveins og stendur það frá kl.10:30-17:10. Seinna námskeiðið verður haldið á Akureyri miðvikudaginn 13.október kl.14:30-17:15 í Hömrum, sem er minni salurinn í hinu nýja og stórglæsilega menningarhúsi þeirra Akureyringa, Hofi. Námskeiðin miðast við langt komna nemendur í miðnámi og nemendur í framhaldsnámi.

Á vegum EPTA býður Marmriev einnig upp á einkatíma í vikunni 11.-15. október. Aðsókn að námskeiðunum er með allra besta móti og einnig er orðið fullbókað í einkatímana.

Alls 11 nemendur taka þátt í námskeiðinu í Reykjavík og alls 6 nemendur á Akureyri. Námskeiðin eru EPTA meðlimum og nemendum þeirra að kostnaðarlausu en fyrir þá sem eru utan félags er þáttökukostnaður kr. 3.500.– Í áheyrn er gjald kr. 1000 utan félags en kr. 500 fyrir nemendur.

Mamriev nįmskeiš: Dagskrį 10. október ķ Reykjavķk

Sękiš hér

Mamriev nįmskeiš: Dagskrį 13. október į Akureyri

Sękiš hér

Píanónámskeiði Frestað!!


Píanónámskeiðinu sem stóð til að Geoffrey Douglas Madge héldi á vegum
Tóneyjar komandi helgi, hefur verið frestað!

Fyrir frestun eru nokkrar ástæður en fyrst og fremst sú að ekki fékkst
næg þátttaka í upphafi skólaárs. Þeir sem gjarnan hefðu viljað spila eru
ekki tilbúnir með efni svona semma á haustdögum.

Það skal tekið fram að hér er eingöngu um frestun að ræða og gert ráð
fyrir að námskeiðið fari fram síðar í vetur.

Geoffrey mun koma til Íslands, og leika á tónleikum í Tíbrár röð
Salarins í Kópavogi, miðvikudaginn 26. september 2007ásamt Guðna Franzsyni.

Þar sem meistarinn er nú kominn til landsins höfum við á Tóney ákveðið
að hafa opið hús fyrir píanista og annað áhugafólk um tónlist að
Síðumúla 8, 108 Rvk. mánudagskvöldið 24. sept. kl. 20.00
, og eiga þar
stutta stund með Geoffrey til að kynnast aðeins nánar hans lífi -
hljóðfæraleik, kennslu og starfi.Vonumst til að sjá sem flesta.
Tóneyingar

Aftur á upphafsíðu

Píanónámskeið Geoffrey Douglas Madge

Dagana 21. - 23. september næstkomandi heldur Geoffrey Douglas Madge
námskeið fyrir píanóleikara á vegum Tóneyjar. Skráning og frekari
upplýsingar á www.toney.is og toney@toney.is

Föstudagur 21. sept. 20.00 - 21.30, inngangur og kynning á Tóney - Síðumúla 8, 108 Reykjavík
Laugardagur 22. sept. 10.00 - 14.00 námskeið í Salnum Kópavogi
Sunnudagur 23. sept. 10.00 - 14.00 námskeið í Salnum Kópavogi

Gert er ráð fyrir ca 10 virkum þátttakendum en námskeiðið er annars opið áheyrendum.

Þátttökugjald er kr. 5.000 fyrir virka þátttakendur og kr. 1.000 fyrir áheyrendur.

Geoffrey Douglas Madge er meðal virtustu píanóleikara og kennara. Fæddur í Ástralíu en búsettur og starfandi prófessor við Konunglega Tónlistarháskólann í Den Haag í Hollandi. Geoffrey er einstakur tónlistarmaður og kennari sem hefur lagt áherslu á píanótónlist 20.
aldar en leikur jafnframt og kennir allar helstu píanóbókmenntir.

Virkir þátttakendur hafa algerlega frjálst efnisval en æskilegt er að þeir hafi lokið miðstigi í námi eða séu komnir lengra.

Frekari upplýsingar um Geoffrey Douglas Madge má finna á
http://www.xs4all.nl/~madge/

Námskeið í Píanóleik


Námskeið í píanóleik verður haldið í Tónskóla Sigursveins, Reykjavík 28. maí- 7. júní 2007. Námskeiðið er ætlað nemendum frá miðstigi til háskólastigs. Aðaláhersla verður lögð á góða tækni og slökun í píanóleik. Fyrirlestur, einkatímar og hóptímar. Leiðbeinandi: Anna Málfríður Sigurðardóttir píanóleikari

Nánari upplýsingar um tilhögun námskeiðsins, kostnað og innritun veitir:
Anna Málfríður Sigurðardóttir
Sími: 551-1085; GSM: 862-4764. Netfang: annams@ismennt.is. Umsóknarblað

PÍANÓNÁMSKEIÐ

Edda Erlendsdóttir píanóleikari mun halda námskeið fyrir íslenska píanónemendur í Reykjavík dagana 1. - 10. ágúst . Miðað er við að hver nemandi fái 5 píanótíma og til greina kemur að hafa einhverja hóptíma ef áhugi er fyrir hendi. Námskeiðið höfðar sérstaklega til nemenda á framhalds og háskólastigi sem óska eftir að vinna intensíft undir handleiðslu leiðbeinanda í 10 daga samfellt. Námskeiðið kostar 20.000 kr

Ef áhugi er fyrir hendi hafið vinsamlegast samband við Eddu netfang: edda.erlendsdottir@club-internet.fr
heimasími: 00 33 143 70 04 62, gsm: 00 621 58 52 53, Íslenskur gsm frá og með 8. júlí

EDDA ERLENDSDÓTTIR

píanóleikari er fædd í Reykjavik. Hún stundaði nám hjá við Tónlistarskólann í Reykjavik m.a. hjá Árna Kristjánssyni. Hún lauk einleikaraprófi árið 1973 en hafði ári fyrr lokið píanókennaraprófi. Hún hlaut franskan styrk og stundaði síðan nám við Tónlistarháskólann í Paris hjá Pierre Sancan og lauk þaðan prófi árið 1978. Hún hefur einnig notiðleiðsagnar Marie Francois Bucquet. Hún var valin fulltrúi Menuhin stofnunarinnar árið 1990.

Hún hefur haldið fjölmarga tónleika og tekið þátt í tónlistarhátíðum á Íslandi, Frakklandi, Danmörku, Finnlandi, Noregi, Svíþjóð, Englandi, Belgíu,Sviss, Ítalíu, Þýskalandi, Rússlandi, Lettlandi, Úkraníu og í
Bandaríkjunum. Hún hefur leikið með hljómsveit m.a. með Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Leif Segerstam, Larry Newland, Klauspeter Seibel, Jean-Pierre Jacquillat, Miltiades Caridis og Petrí Sakarí.

Edda átti frumkvæðið að Kammertónleikum á Kirkjubæjarklaustri og var í 15 ár listrænn stjórnandi. Hún er meðlimur í kammerhópnum Le Grand Tango sem undir stjórn Oliviers Manoury hefur sérhæft sig í flutningi á argentískum
tangó.

Efnisskrár hennar spanna fyrstu verkin skrifuð fyrir fortepíanó allt fram til samtímatónlistar og hefur hún frumflutt verk eftir núlifandi tónskáld. Eru sérstaklega í uppáhaldi verk eftir C.P.E. Bach, Haydn, Schubert, Schumann, Liszt, Grieg, Tchaikovsky, Debussy, Ravel, Schoenberg og Berg.

Edda hefur gert fjölda upptökur bæði fyrir hljóðvarp og sjónvarp. Hún hefur gefið út geisladiska með píanóverkum eftir C.P.E.Bach, Tchaikovksky, Grieg og Haydn sem hlotið viðurkenningu og lof gagnrýnenda. Diskur hennar með Bryndísi Höllu Gylfadóttur þar sem þær leika verk eftir Kodaly. Martinu, Enescu og Janacek hlaut árið 2004 íslensku tónlistarverðlaunin

EDDA ERLENDSDÓTTIR píanóleikari er búsett í París en tekur um leið virkan þátt í tónlistarlífinu á Íslandi. Á árunum 1983 - 1994 kenndi hún við Tónlistarháskólann í Lyon en er nú prófessor í píanóleik viðTónlistarskólann í Versölum.


 

Salurinn - EPTA - Listaháskólinn

Nelita True

Fyrirlestur / Masterklass
í Salnum, Kópavogi 4. febrúar 2006

kl. 10 Fyrirlestur Nelitu True

“A New Look at Old Favorites: Mozart D Minor Fantasy; Bach Two-Part Invention in B-Flat Major; Chopin Nocturne in E Minor, and Debussy First Arabesque”

“Freeing Students’ Technique”

kl. 11.30 Hlé, létt hressing

kl. 12 Masterklass

F.Liszt: Tarantella úr Venezia e Napoli
Birna Hallgrímsdóttir

L.v. Beethoven: Appassionata 1. kafli
Hákon Bjarnason

W. A. Mozart: Sonata C dúr 1. kafli
Halla Oddný Magnúsdóttir

J. Haydn: Sonata B moll
Ingibjörg Jóna Halldórsdóttir

Til vara: L.v. Beethoven: Sonata As Dúr Op.26, 1.kafli
Laufey Haraldsdóttir

Nelita True biður kennara að taka með sér nótur fyrir fyrrnefnda umfjöllunarefnið
Það gæti farið svo að eitt af verkunum sem Nelita True tekur fyrir falli niður svo meiri tími sé fyrir seinna umfjöllunarefnið.

MOZART Í TALI OG TÓNUM
sunnud. 5. febrúar 2006 í Salnum

Daginn eftir, sunnudagskvöldið 5. febrúar kl. 20 heldur Nelita síðan tónleika í TÍBRÁ í Salnum þar sem hún leikur píanóverk eftir Mozart og spjallar um þau (talking recital). Miðasala er hafin og er almennt miðaverð 2.000 kr. Þátttakendur á námskeiðinu greiða 1600 kr.

Aftur á upphafsíðu