Píanókeppni EPTA 2012

Undirbúningur fyrir næstu íslensku EPTA keppni, sem haldin verður 2012, er hafinn. Nú þegar hafa verið skipaðir dómarar í keppnina. Þeir verða að þessu sinni Nelita True, yfirdómari, Halldór Haraldsson, Anna Þorgrímsdóttir, Selma Guðmundsdóttir og Kristinn Örn Kristinsson. Daníel Bjarnason er að semja verk fyrir efsta flokk keppninnar og ríkir mikil eftirvænting. Píanókonsertinn hans var einmitt fluttur á Icelandic Airwaves nú í vikunni sem leið, undir stjórn Daníels. Víkingur Heiðar Ólafsson lék af glæsibrag með Sinfóníuhljómsveit Íslands.

Píanókeppni í RÓM 10. - 20. október

Dear Collegues,
from 10th to 20th October will take place in Rome the 20th International Piano Competition "Rome 2010", organized by the Associazione “F. Chopin” silver plate of the President of the Republic and under the patronage of the Ministry for Culture and with the contribution of the City of Rome - Assessorato alle Politiche Cuturali e della Comunicazione and under the patronage of EPTA- Italy.
I would be very happy if members/pupils of EPTAs could participate to this Competition, in order to increase the cooperation between EPTAs.

Deadline for applications: 20st September 2010

SECTIONS:

A - Soloists born since 1991 on - one round;

B - Soloists born since 1985 on - one round;

Four Hands Duo - born since 1976 on - one round;

Two Pianos Duo - born since 1976 on - one round;

Chopin Prize - Soloists born since 1976 on - three rounds and round with orchestra.


Info: www.chopinroma.it
chopinroma@libero.it
Phone - Fax +39 06 5073889
For applications: http://www.chopinroma.it/iform.htm

Píanókeppni EPTA - nánari dagskrá

        1. flokkur - miðvikudag

       2. flokkur - miðvikudag og fimmtudag

       3. flokkur fimmtudag

Píanókeppni EPTA 2009

IV. Píanókeppni Íslandsdeildar Epta fer fram í Salnum í Kópavogi 4.- 8. nóvember næstkomandi.
Eins og fram hefur komið er keppnin ætluð píanónemendum 25 ára og yngri og er henni skipt upp í þrjá flokka; 1. flokkur 14 ára og yngri, 2. flokkur 18 ára og yngri og 3. flokkur 25 ára og yngri.

Um 40 nemendur víðsvegar að af landinu taka þátt, og fer forkeppni fram miðvikudaginn 4. nóvember og fimmtudaginn 5. nóvember. Laugardaginn 7. nóvember fara svo fram úrslit en þar koma fram 5 nemendur í hverjum flokki sem komist hafa áfram. Keppnisdagana hefst leikurinn kl. 9 og stendur fram undir kl.18. Lokahóf og verðlaunaafhending fer fram sunnudaginn 8. nóvember kl.14

Professor Diane Andersen frá Belgíu mun leiða dómnefndina sem skipuð er Halldóri Haraldssyni, Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur, Þorsteini Gauta Sigurðssyni og Jónasi Sen. Tryggvi M. Baldvinsson hefur samið glænýtt verk sem er fyrir yngsta flokk keppninnar að þessu sinni. Keppnin er opin almenningi til áheyrnar gegn vægum aðgangseyri, en frítt er fyrir nemendur.

IV. Píanókeppni EPTA 2009

Bæklingur um píanókeppnina á pdf-formi

Skylduverk fyrir 1. flokk í píanókeppni EPTA hér

III. Píanókeppni Íslandsdeildar EPTA 2006

Um keppnina

Þátttakendur og verk í fyrstu umferð

Nemendur sem komust í úrslit og verkin sem þeir léku

Aftur á upphafsíðu