Aðalfundur Epta Íslandsdeildar var haldinn á Hótel Borg 20 september 2007.


Sex manns mættu á fundinn, þar af tveir úr stjórn og fjórir utan hennar!

Formaður stjórnar, Arndís Björk komst ekki á fundinn, og gaf ekki kost á sér áfram sem formaður en er reiðubúin að vera innan handar og miðla reynslu. Brynhildur og Þóra Fríða gáfu kost á sér áfram í stjórn og Judith Þorbergsson kom ný inn. Vilhelmína Ólafsdóttir í varastjórn. Kristinn Örn sér áfram um vefsíðu EPTA.

Fram koma áður fyrr stóð Epta oftar fyrir meistaranámskeiðum með erlendum og innlendum listamönnum, nú sjá skólarnir meir um slíkt sjálfir og einnig er samstaða milli skóla um að samnýta krafta sem er af hinu góða. Píanóeppni EPTA var haldin í 3 sinn í nóvember 2006 og hefur þegar sannað gildi sitt, hefur haft jákvæð áhrif á píanónemendur og þeir sem hafa staðið á vinningspalli eins og Víkingur Heiðar og nú Guðrún Dalía verið þakklátir fyrir þesssa frábæru reynslu. Einhver gagnrýni hafði borist, einkum hvað varðar þyngd á verki Snorra. Umfjöllun um keppnina í fjölmiðlum var ágæt og fjárhagslega kom keppnin vel út þar sem stjórnin var dugleg að afla styrkja.

Epta hefur komið að nokkrum námskeiðum, meðal annars með André Mark-Hamelin, Nelita True, Önna Málfríði Sigurðardóttur, Eddu Erlendsdóttur og Diane Anderson.
Heimasíðan www.Epta.is komst í gagnið og hefur þegar sannað gildi sitt. Stjórnin áformar að safna saman netföngum og símanúmerum svo hægt verði að koma skilaboðum áleiðis til félaga. Stjórn Epta hefur haldið um 15 vinnufundi, og sent ótal tölupósta. Samvinna mjög góð, verkefnum skipt bróðurlega.

Mikilvægt er fyrir okkur að halda virkum tengslum við Epta Europe. Nú í November er 29. ráðstefna Epta í Novi Sad í Serbíu. EPTA fær reglulega boð um að senda erindi á þessar ráðstefnur. Elías Daviðsson fór til Manchester síðasta ár og kynnti bækur sínar. Hann fékk boð um að koma aftur nú til Novi Sad og kynna verk sín.

Rætt var vítt og breytt um þær breytingar sem hafa átt sér stað í píanókennslu síðustu árin og það að engin eiginleg kennaradeild skuli vera starfandi í dag. Fundargestir voru sammála um að styrkja þyrfti píanókennarana hér og gott væri að hittast um kvöld eða laugardagseftirmiðdegi, þar sem fram gætu farið örnámskeið, erindi eða umræður. Allir voru sammála að þetta gæti verið gott verkefni í vetur. Ákveðið var að fá Kristin Örn til að ríða á vaðið með kynningu á sjálfvöldu efni. Einnig kom fram hugmynd um að fá kynningu á finnska píanóskólanum.
Allir voru sammála um að virkja þurfi fleiri til starfa fyrir félagið, allavega í formi stuðnings eins og að mæta á uppákomur og dreifa verkefnum.

(samantekt ÞFS / KÖK)

Aftur á upphafsíðu