Fréttatilkynning


Píanódagar 9.–12. mars í Salnum

Domenico Codispoti – tónleikar og meistaranámskeið

Ítalski píanóleikarinn Domenico Codispoti heldur einleikstónleika í Salnum föstudaginn 9. mars næstkomandi kl. 20.00. Á efnisskrá tónleikanna verða Sónata í h-moll eftir Franz Liszt, Evocation og El Puerto úr Iberia eftir Isaac Albeniz og sex Études-Tableaux eftir Serge Rachmaninoff. Tónleikarnir marka upphaf Píanódaga, sem haldnir eru í samvinnu þriggja tónlistarskóla á höfuðborgarsvæðinu.

Domenico Codispoti fæddist árið 1975 í Catanzaro í Calabria á Suður-Ítalíu. Eftir glæsilegan námsferil gerði hann víðreist og hefur hann haldið einleikstónleika og leikið með virtum sinfóníuhljómsveitum á meginlandi Evrópu, í Bandaríkjunum og Asíu.
Codispoti hefur hvarvetna hlotið lof áheyrenda og gagnrýnenda fyrir leik sinn og hefur hann unnið til fjölda verðlauna. Hann hefur verið fenginn til að dæma í alþjóðlegum píanókeppnum og hin síðari ár hefur hann fengist í auknum mæli við að leiðbeina nemendum á masterclass-námskeiðum.

Codispoti hefur áður sótt Ísland heim. Hann lék á Tíbrártónleikum í Salnum og á Ísafirði árið 2000, með Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 2001, í Ými árið 2003 og í Hafnarborg í samvinnu við Listahátíð 2006.

Laugardag og sunnudag, 10. og 11. mars, verður Codispoti leiðbeinandi ungra píanóleikara á meistaranámskeiði í Salnum. Það stendur yfir frá kl. 9.30 til 17 á laugardeginum og kl. 9.30 til 16 á sunnudeginum. Námskeiðið er öllum opið og án endurgjalds.

Það eru Tónlistarskóli Hafnarfjarðar, Tónlistarskóli Kópavogs og Tónskóli Sigursveins D. Kristinssonar sem standa að Píanódögunum. Þeim lýkur með tvennum sameiginlegum nemendatónleikum skólanna þriggja mánudaginn 12. mars kl. 18.00 og 20.00.

Aftur á upphafsíðu